Veldu tungumál

Innskráning

  Tölvupóstfang. (e-mail):
  Aðgangsorð:
  Mundu eftir þessu
 
  Gleymdir þú aðgangsorðinu? >>>

Yfirlit

Niðurtalning

3 dagar eftir til næsta móts. Ungverjaland er næsti mótsstaður.

Skiptimarkaðurinn lokar þegar fyrri tímatakan hefst.

Reglur

Stigagjöf
Hvernig á að búa til lið?
Verðmæti þíns liðs
Breyta liði mínu

Stigagjöf

F1 Manager leikurinn samanstendur af 18 mótum heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Hver einstök umferð eða mót skilar þátttakanda (framkvæmdarstjóra) stigum, bæði í tímatökum og kappakstri. Yfirlit yfir stigagjöfina er á stiga yfirlitinu á upphafssíðunni. Smelltu á yfirlit til að sjá stigagjöfina eftir hvert mót.

Ef FIA ákveður að breyta úrslitum móts á mánudegi eða þriðjudegi eftir keppni, hver sem ástæðan er, þá verður stigagjöf F1 Manager breytt á samsvarandi hátt. Staðan sem er birt strax eftir mót er því óstaðfest.

Ef ekkert hefur breyst 72 tímum eftir að keppni er lokið, þá eru úrslit F1 Manager staðfest eins og þú komu fyrir eftir keppni. Ef FIA ákveður að breyta úrslitum eftir þessi tímamörk, þá verður úrslitum í leik F1 Manager ekki breytt.

Þau stig sem þú vinnur þér inn ákvarðar stöðu þín í leiknum. Ef tveir eða fleiri framkvæmdarstjórar eru með sama stigafjölda, þá vinnur sá sem á mesta peninga eftir leikinn. Ef tveir eru jafnir þá ræður hlutkesti hver vinnur leikinn.

 



  • Click here to view the GPUpdate.net F1 Manager points system
  • Hvernig á að búa til lið?

    Hvert lið hefur til umráða tvo ökumenn,undirvagn, vél og dekk. Þú þarft að velja alla þætti til að vera gjaldgengur í leikinn.

    Þú getur aðeins notað einn þátt frá hverju liði í keppnislið þitt. Sem dæmi, ef þú velur Jenson Button sem ökumann, þá getur þú ekki keypt vél frá Honda eða undirvagn.

    Velja þarf blöndu ökumanna og búnaðar frá mismunandi liðum til að búa til keppnislið í leikinn.

    Hver framkvæmdarstjóri F1 Manager fær 100 miljónir evra til umráða í upphafi leiks. Þú þarft að kaupa tvo ökumenn, einn undirvagn, eina vél og velja dekkjategund. Allir þessir þættir eru verðlagðir í upphafi tímabils, en verðgildi þeirra eykst eða minnkar eftir árangri í mótum.

    Þú getur kallað liðið það sem þú vilt, skýrt það sjálfur og líka nafn framkvæmdarstjórans. En þú verður að skrá allar upplýsingar um þig á upplýsinga blaðinu við skráningu inn í leikinn.

    Raunverulegt nafn þitt þarf ekki að koma fram í leiknum nema þú viljir það. Þá þurfa að upplýsingar að vera réttar svo verðlaun komist till skila.

    Ný regla 2006.
    Ef ökumaður neyðist til að sleppa keppni af einhverjum örsökum og hann fær varamann, þá færðu ekki stig fyrir þann sem tekur sæti hans. Þú verður að skipta um ökumann og velja hann úr hópi þeirra sem keppa á reglubundinn hátt.

    Ef ökumaður skiptir um lið á tímabilinu af einhverjum ástæðum, þá heldur þú þeim ökumanni innan þíns liðs, jafnvel þó hann noti þá búnað sem þú hefur þegar valið frá nýju liði hans. Gerð verður undantekning frá reglunni.



  • Verðlag á skiptimarkaðnum
  • Verðmæti þíns liðs

    Sem nýr framkvæmdastjóri þá færðu 100 miljónir evra til umráða. Notaðu peningana til að kaupa tvo ökumenn, vél, undirvagn og dekk.

    Þú færð peninga upp í hendurnar eftir hver tmót miðað við þann árangur sem keppnislið þitt nær í mótinu. Hvert stig færir þér 50.000- evrur. Því fleiri stig sem þú vinnur þér inn, því meiri peninga færðu til umráða.

    Í upphafi tímabils þá er verðmæti hvers ökumanns, undirvagns, vélar og dekkja ákveðinn upphæð. Eftir hvert mót er vægi þessara þátta umreiknað miðað við árangur sem næst í mótum. Ef ökumaður vinnur mót, þá eykst verðmæti hans um 9 miljón evrur.

    Ökumaður getur aldrei orðið meira en 150 miljón evra virði á keppnistímabilinu og aldrei minna en 1 miljón evra.

    Þú getur breytt liði þínu á milli móta til að bæta stöðu þína í keppinni, mót frá móti.



  • Click here to view the value overview page
  • Breyta liði mínu

    Eftir hvert mót þá getur þú breytt liðinu þínu. Þú getur keypt eða selt ökumenn að vild. TIl að bæta stöðu þína í mótinu.

    Skiptimarkaðurinn opnar ekki fyrr en 72 tímum eftir að mót hefst. Skipitmarkaðnum er lokað um leið og tímatakan hefst.

    Ef þú vilt skipta um ökumann, vél, undirvagn eða dekk þá þarftu fyrst að selja þann þátt sem þú vilt breyta. Ef þú vilt selja einhvern hluta liðsins, t.d. annan ökumanninn þá færðu 90% verðgildi hans. Tapar 10% í söluþóknun.

    Á skiptimarkaðnum finnur þú lista yfir verðmæti einstakra þátta, verðmæti ökumanna, véla, undirvagna og dekkja.

    Ef raunverulegt keppnislið lýkur ekki keppnistímabilinu í Formúlu 1 af einhverjum orsökum þá þarftu að breyta þínu liði á samsvarandi hátt til að geta unnið þér inn stig.